endalaust frí og gleði

....eða ekki.

Sumir gætu haldið að ég væri í þriggja mánaða sumarfríi en svo gott er það nú ekki. Einföld ástæða er fyrir bloggskorti þessum og kallast sú í daglegu tali LETI. Já ég er allt að því að kafna úr leti og andleysi og það er ekki gott í mínum bransa skal ég segja ykkur. Innslög mín á brainstorming fundum eru vægast sagt sorgleg, hugmyndaríkið ekkert og þ.a.l er bloggleysið algjört.

En ég kem sterk til baka, sjáið þið til...


Hið fullkomna frí

Í dag er síðasti vinnudagur fyrir frí, klöppum fyrir því.

Ég er búin að finna uppskrift að hinu fullkomna fríi, það eina sem mig vantar er fellihýsi eða tjaldvagn í nokkra daga og gott veður í þrjár vikur. Góða veðrið má gjarnan byrja hérna fyrir sunnan, gott væri að fá milt og gott á Snæfellsnesinu um helgina. Um aðra helgi væri svo frábært að fá blíðu á Akureyri og nágrenni. Helgina þar á eftir myndi ég svo þiggja þurrt og milt veður á vestfjörðunum, nokkrir sólardagar myndu aldeilis ekki skemma fyrir þar. Ef einhver gæti bjargað þessu fyrir mig yrði ég ævinlega þakklát.

Later


smart

Já að sjálfsögðu mun himininn byrja að skæla nú þegar ég er á leið í frí. Maður og börn eru búin að sleikja sólina undanfarna daga meðan ég hef verið föst inni á skrifstofu og nú þegar líður að helgi er góðviðriskaflanum að ljúka. Varla þarf að taka það fram að ég var búin að plana ferðalag um helgina og sólböð og letilíf næstu viku, sennilega er þörf á að endurskoða skipulagið eilítið.

 


mbl.is Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótboltamamma

Eyddi deginum á fótboltavelli. Sonurinn sýndi listir sínar og ég klappstýrði honum frá hliðarlínunni.

Ég hef séð margar bíómyndir þar sem gert er grín að fótboltamömmum svokölluðum og þótt fyndið, minna fyndið þykir mér þó að ég virðist vera orðin ein þessara mæðra. Fótboltamót barna eru nefnilega stórmerkileg fyrirbæri, á völlinn mæta uppstrílaðir krakkar með virðulegum (í flestum tilfellum) foreldrum sem enda svo á hliðarlínunni öskrandi og klappandi, sumir með stuðningshróp og hvatningu (eins og ég að sjálfsögðu) aðrir með skammir og leiðindi og mættu sleppa því að mæta. Ég læt svolítið heyra í mér, verð að viðurkenna það. Hefði aldrei trúað að mér yrði þetta svona hjartans mál en ég virðist ekki ráða við mig þegar drengurinn skorar, hvað þá þegar á honum er brotið, rólyndismanneskjan ég, hver hefði trúað þessu.

Annars var svo skemmtiatriði á mótinu, Jógvan (Jöggvan, Jóggvan, það náðist ekki samkomulag um framburð) söng nokkur lög áður en verðlaunin voru veitt. Mér finnst Jógvan fínn raulari, finnst folatitlinum aðeins ofaukið, sætur strákur og svona en finnst hottnessið ekki ná í folastatusinn. Eníhú, hann tók þarna nokkur lög meðan krakkarnir biðu í röðum eftir verðlaunum, get ekki sagt að mér hafi fyndist róleg lög á ensku viðeigandi skemmtiatriði yfir dauðþreyttum krökkum sem biðu eftir verðlaunum, hefði frekar viljað sjá töframann, eða halda-á-lofti meistara, eða rappara, það hefðu grísirnir fílað. Dóttir minn hins vegar fílaði Jógvan og tók ansi skemmtilegan nútímadans fyrir gesti og gangandi. Gaman að því.

Erfið helgi að baka og rúmið kallar


afmælisstelpumamma

í dag er stór dagur, litla skottan mín er orðin þriggja ára skvísa. Veislan var í gær, þar var margt góðra gesta og komu þeir allir færandi hendi þeirri stuttu til mikillar ánægju. Mikið hlegið, mikið leikið og sérlega mikið borðað.

Mikið vildi ég að ég myndi eftir því þegar ég var þriggja, held að það hljóti að vera afar skemmtilegur aldur. Orðin talandi, skýr og hugsandi en um leið svo afspyrnu vitlaus og einföld að svo mörgu leiti, yndisleg alveg.


sumarfrí eða ekki

Ég er búin að vera í sumarfríi síðan um áramót, hef haft það gott, málað, eldað og ekki síst bloggað. Ljómandi hress heima hjá mér á fullum launum. Í júní, þegar venjulegt fólk fer svo að hefja sumarfrístímann sinn, þá byrjaði ég að vinna. Og svo virðist sem ég hafi takmarkaðan tíma til að blogga nú þegar ég er orðin útivinnandi á ný. Takmarkið verður þó að reyna að ná amk einu bloggi á mánuði og fleirum þegar tíðin er góð og lítið um að vera.

Í nýju vinnunni er ég svo heppin að fá mikla útrás fyrir bullþörfina, þessa fyrstu viku hef ég samið eins og eina heimasíðu (textann) og nokkrar auglýsingar. Þal hef ég mun minni þörf til að bulla á þessum miðli hér en hver veit kannski eykst þörfin í samræmi við útrásina, hver veit, hver veit... það eina sem ég veit er að ég þarf að fá mér kaffi áður en ég held áfram að bulla....annars staðar


Æi

Í morgun skrifaði ég heljarblogg um helgina sem var fín sem og hjólreiðatúr sem við fjölskyldan fórum í á laugardaginn. Tölvum heimilisins er hins vegar illa við mig þessa dagana og færslan hvarf.

Mér finnst ágætt að hjóla, dó reyndar næstum þegar ég fór í hjóltúrinn um helgina. Feðgarnir eru á nýjum fákum, ég á gamla hjólinu hennar tengdamömmu með 13 kíla farangur í bílstól. Brekkan úr Fossvoginum og heim er brött og mér skilst ég hafi skipt litum þegar ég reyndi að halda í við strákana á leiðinni. Í stólnum er hins vegar innbyggt útvarp sem söng lög úr leikritinu Karíus og Baktus alla leiðina, reyndar alltaf sama lagið en nýju hjólin höfðu ekki svona lúxus. Söngurinn létti lífið og ég komst upp brekkuna, þeir voru að sjálfsögðu á undan en brekkan hafðist og svo þurfti ég að leggjast í grasið fjólublá í framan, með andateppu og hjartað á leið út úr brjóstinu. En það hafðist.

Þegar ég var búin að skrifa blogg morgunsins (sem var miklu lengra og skemmtilegra en þetta) ákvað ég að skella mér út í sólina. Þar sem ég var ekki af baki dottin ákvað ég að hjóla niður í Laugardal og sóla mig þar góða stund. Í þetta sinn ákvað ég þó að  taka áhættu og stela nýja fák bóndans og vonaði að það gengi betur. Áhættan fólst ekki í því að ég gæti verið barin ef upp kæmist um stuldinn heldur sú að hjólið er heldur stórt fyrir hana litlu mig og ég er hrædd um að ég yrði ekkert of hamingjusöm ef ég dytti á slánna. Ég tók sénsinn og komst að því að það var gamla hjólið sem var lélegt, ég er upprennandi hjólreiðahetja, þreytt en efnileg.


Skondnar uppáferðir...

Mikið rosalega var gaman í gær. Fékk mínar ástkæru og yndisfögru vinkonur í heimsókn, kalli og börnum var hent út. Við borðuðum rosalega góðan mat, drukkum góð vín, hlógum og kjöftuðum eins og okkur einum er lagið.

Held að við vinkonurnar værum ekki lengi að henda Ellý Ármanns út af topp blogg listanum ef ég myndi blogga um sambærilega hluti. Reyndar held ég að ég gæti skammlaust hoppað yfir bloggið og farið beint í að skrifa metsölubók um vandræðaleg augnablik, skondnar uppáferðir, úlfa og augndropa. Ja gott ef bókin gæti ekki verið í amk þremur bindum og svo myndum við fylgja þessu eftir með kvikmyndahandriti og þá væri framtíðin björt. Af einskærri virðingu við þessar yndislegu vinkonur mínar verð ég þó að sitja á mér því sumir hlutir eiga bara ekki að vera á hvers manns vitorði.


Bjór og blogg

Ég var að spá hvort ég ætti að hætta að blogga, svona til að vera kúl og fylgja straumnum en áttaði mig fljótt á að þessháttar yfirlýsing myndi seint valda titringi hjá dyggum lesendum mínum þar sem ég held að þeir séu allir fjórir frekar uppteknir þessa dagana.

ÉG viðurkenni svekkesli mitt yfir eurovision, ég var búin að eyða fleiri dögum í að sannfæra alla í kringum mig um ágæti eurovision og svo bara dauðleiddist mér en ég er búin að jafna mig, sátt við menn og dýr og jafnvel euro.

Málið er bara að undanfarið er búin að vera sól og blíða, amk í garðinum mínum. Metfjöldi gesta hefur komið til mín til að njóta sólarinnar í garðinum, sumir fá kaffi, sumir koma með súkkulaði en allir hafa þeir átt það sameiginlegt að vera hinn ágætasti félagsskapur. Ég hef notið þess að sitja úti og fylgjast með fíflunum (þá er ég að sjálfsögðu að tala um gróðurinn í garðinum en ekki háttvirta gesti mína) og spjalla, ástæðan fyrir að ég fylgist með fífilunum en tek þá ekki er hreinlega sá að ekki er hægt að tala um mig og gróður og græna fingur í sömu setningu. Líffræðingurinn sjálfur sem fékk btw fína einkunn í grasafræði í HÍ  þekkir vart muninn á blöðum og rótum og getur setið og horft á óræktina í eigin garði tímunum saman án þess að finna fyrir nokkurri löngun til að tæta og róta í beðum og runnum. Niðurstaðan er semsagt sú að ég virðist ekki geta bloggað í góðu veðri, í góðu veðri verð ég að fara í sund og njóta lífsins, fæ samviskubit yfir að njóta ekki sólarinnar, heppni ef fjölskyldan fær að borða.

Í kvöld sit ég ein heima (ein vakandi) og drekk bjór, þá er gott að blogga. Gott ef ég opna ekki bara annan og blogga á eitthvað af hinum síðunum sem ég er með á mínum vegum.


Euro partý

Ég hef alla tíð verið forfallið eurovision nörd. Þegar ég var lítil voru allar keppnir teknar upp á vídeó hjá frænku minni (sem var sérstaklega merkilegt þar sem við eignuðumst ekki svoleiðist apparat fyrr en mörgum árum síðar). Þessar keppnir gátum við horft á aftur og aftur. Við gátum leikið atriði Bobbysocks algjörlega skammlaust (sem og flest önnur reyndar), kunnum hvert einasta orð og hvert einasta spor. Við þekktum líka hverja einustu feilnótu og hlógum fyrirfram þegar þær voru væntanlegar. Textarnir hafa sennilega verið misgáfulegar enda enda við ekki nema um 8 ára og ekki mjög sterkar í enskunni (hvað þá öðrum tungumálum).

Ég keypti mér eurovision disk í fyrra (já ég veit) en ég og börnin fílum hann í tætlur. Kallinn verður ekkert rosalega hamingjusamur þegar ég set hann í á langferðum og syng með en bíddu jú , mér er eiginlega alveg sama. Mér finnst bara hrikalega gaman að horfa á eurovision, gagnrýna og hlægja. Horfa með börnunum yfir pizzu og snakki eða með vinunum yfir bjór og .......bjór. Í kvöld ætla ég því að baka pizzu, kaupa snakk og horfa með börnunum, þá verða börnin ekkert sár þótt ég reddi pössun á laugardaginn og horfi með vinunum yfir bjór.


Næsta síða »

Um bloggið

Telma Hrönn Númadóttir

Höfundur

Telma Hrönn Númadóttir
Telma Hrönn Númadóttir
Líffræðingur á krossgötum
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 5917

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband